ERLA J, ERLA L OG UNA DÍS
Una & nonni
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1598 dögum
Erlu L myndir
leitartenglar
Una og Nonni eru úti
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734555 dögum
15.01.2008 00:21:15 / erlurnar

ALLT NÝTT AFTUR

http://www.123.is/erlaoguna

JEBB ÖNNUR NÝ SÍÐA


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 10:11:43 / erlurnar

HALLÓ HVAÐ ER MÁLIÐ?

HALLÓ AFHVERJU KÍKJA HINGAÐ ALLTAF ALLAVEGANA TVÖFALT FLEIRI EN Á HINA SÍÐUNA SEM ER LINKUÐ FYRIR NEÐAN ! ERUÐ ÞIÐ SVONA LÖT AÐ ÞIÐ NENNIÐ EKKI AÐ KLIKKA Á LINKINN ? WWW.ERLAOGUNA.BLOGGAR.IS

UNA


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 14:34:08 / Una Dís

Hérna er ein gömul

ýkt skrítið að lesa þetta :D reyna að hugsa hvað maður var að pæla og svona hehe ;)

en ég ætla hér með að segja þetta líka hehe :

10.01.2006 / 18:06:36 / erlurnar

Sama hver þú ert!!

commentaðu nafninu þínu og......

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

 2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt

Erla_J

 


« Til baka
10.01.2006 19:26:19   /  Edvin /
Edvin skrifaði
10.01.2006 20:07:14   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Edvin :)
1. Þú ert langsætasti strákurinn á jörðinni :)
2. Now and forever með Richard Marx
3.Súkkulaði ísbragð
4.Fyrsta minningin er þegar við hittumst í fyrsta sinn á dansgólfinu á Casino og Harpa frænka þín kynnti okkur
5.Þú minnir mig á kisu útaf Gulla litla
6.Ég þarf ekki að spurja þig að neinu,veit allt um þig :)
10.01.2006 21:51:04   /  solla bolla /
solla bolla skrifaði
me ,me
10.01.2006 22:05:45   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Sóley :)
1.Þú ert ýkt sæt mamma og yndisleg stelpa
2.Lög með Spicegirls minna mig á þig..hehe
3.Sykurpúðabragð
4.Man alltaf svo vel eftir því þegar við fórum í bingó í Vinabæ með mömmu þinni og ömmu :)
5.Verð að segja kisu líka hehe
6.Varst það ekki þú annars sem þoldir ekki kisur?
10.01.2006 22:29:08   /  solla bolla /
solla bolla skrifaði
hehe jújú ég þoli alveg kisur.. hef meiri segja átt nokkra eru bara óheppnar alltaf með umferðina :þ

Þú varst ekkert smá snögg að þessu :þ mætti halda að þú værir bara á snúningstakkanum þarna uppi hehe :)
11.01.2006 00:56:49   /  Erla J /
Erla J skrifaði
heheh,heng í tölvunni allan daginn á meðan skólinn er ekki byrjaður :)
11.01.2006 11:23:25   /  Málfræðihornið /
Málfræðihornið skrifaði
Hangi ekki heng. Eins og í hangikjöt ekki hengkjöt ;)
11.01.2006 16:29:40   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Æjá takk,ég get ekki lagfært þetta hjá mér :)
11.01.2006 16:30:43   /  Sólveig /
Sólveig skrifaði
Taktu mig :)
11.01.2006 16:37:21   /  Erla Lind /
Erla Lind skrifaði
me too
11.01.2006 16:48:24   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Sólveig sys :)
1. Þú ert án efa ein fallegasta kona í heiminum :)
2. Lög með Björgvini Halldórs,uppáhaldið okkar
3. Hot souce auðvitað..hehe
4. Vá við eigum svo margar minningar en hér er ein þegar við vorum litlar...við vorum í leik og þú áttir að segja hvað ég væri að gera með hendurnar fyrir aftan bak..en málið var það að þú giskaðir alltaf rétt og ég skildi ekki afhverju í andsk...en þú hafðir þá látið mig standa fyrir framan spegil og sást allt sem ég gerði :) Svindlarinn þinn. Og svo þegar við vorum í keppni um hvor gæti lyft löppinni hærra upp og ég flaug á bakið og missti andann...en hey vann ég þá ekki? :)
5. Hestur,eftir ævintýrið okkar í mýrinni uppí sveit þegar við héldum að við myndum deyja ..hahah
6. Hvort helduru að þú munir eignast strák eða stelpu??
11.01.2006 17:07:06   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Erla Lind :)
1. Þú ert ein besta vinkona mín frá upphafi og alltaf hægt að tala við þig :)
2. Trick Daddy diskurinn
3. pastabragð,I know you love it
4. Lots of memories here too,..man við misstum alltaf sömu tennurnar á sama tíma,báðar tannlausar að framan og ýkt ánægðar með það. Man líka að þú varst alltaf að fylgja mér heim á kvöldin því ég var svo hrædd og myrkfælin.Takk fyrir það :)
5.Sorry en það er kind,,útaf Erla Lind...Erla kind og svo líka lambakrullurnar þínar
6. Ætlaru að joina mig í háskólann næsta haust?? :) plís.....
11.01.2006 17:23:39   /  Linda Björk :) /
Linda Björk :) skrifaði
Hæhæ litla frænka....har det godt i dag.
11.01.2006 17:31:59   /  Una Dís /
Una Dís skrifaði
halló ;)
11.01.2006 17:43:05   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Linda :)
1. Ýkt góðhjörtuð manneskja og geislar af góðmennsku :)
2. Einhver lög með stjórninni..hehe
3. Pizzubragð..umm
4. hér er ein góð..man þegar við vorum uppí bústað og ég var bara lítil.Við lágum uppí sófa og þú varst að lesa og ég náði mér í bók líka og byrjaði að lesa fyrir þig en kunni það nú samt ekki. Mér fannst það ekkert smá fyndið :) Hey og líka þegar þú og Sólveig voruð alltaf að nota mig!!Vorum alltaf að gilla hvor aðra og þið létuð mig alltaf byrja að gera 100 ferðir við ykkur og svo þóttust þið vera sofandi og gerðuð aldrei við mig..Ýkt vondar hehe
5. Þú minnir mig á bæði hest og kisu...útaf því þegar þú dast af baki og fótbrotnaðir og útaf Tóta mannlegasta ketti í heimi..vá hvað hann var gáfaður
6. Hvað ætlaru að eignast mörg börn?
11.01.2006 17:48:15   /  Linda Björk :) /
Linda Björk :) skrifaði
Hæ..ég ætla að eignast 3 börn. (kannski)
11.01.2006 18:39:13   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Una :)
1. Skemmtilegasta stelpa sem ég þekki. Ýkt lífsglöð og gaman að vera með
2. Einhvað með Creed
3. Singer twister bragð og popp :)
4. Við erum nú búnar að gera margt saman,sterkar minningar af þegar við vorum á rúntinum og fórum í sjoppur og spurðum um eitthvað sem var ekki til og létum afgreiðslustelpuna leita og leita..hehehe ýkt gaman :) Og auðvitað alltaf þegar við vorum í andaglasi..úú spúkí.
5. Þú minnir mig á kisu því ég veit þú þolir þær ekki og síðan ertu með smá kisuaugu elskan mín :)
6. Hvenar á að trúlofa sig?
11.01.2006 18:41:38   /  Una Dís /
Una Dís skrifaði
það veit ég ekkert um! en þú honey?
11.01.2006 18:43:54   /  Erla J /
Erla J skrifaði
umm...þegar að kallinn biður manns :)
11.01.2006 18:53:03   /  Una Dís /
Una Dís skrifaði
Erla Jóhannsdóttir ;)
1. Alger púki, drop dead georgeus og ýkt skemmtileg.
2.Nína og Geiri og öll íslensk dægurlagatónlist hehe;) Clueless minnir mig líka alltaf á þig.
3.Nachos og ostasósa.
4.Það sama hihi og þegar þú hræktir á Nonna í slow motion;)
5.Þú minnir mig á svan því þú ert alltaf svo ljós og það geislar af þér.
6.Ertu fyllibytta?:) hihi (ekkert illa meint)
11.01.2006 18:53:49   /  Una Dís /
Una Dís skrifaði
sama hér hehe
11.01.2006 18:57:45   /  Una Dís /
Una Dís skrifaði
ég er farin að halda að ég sé pínu alki innst inni ;)
11.01.2006 19:07:35   /  Erla J /
Erla J skrifaði
Ég get verið fyllibytta en ekki í augnablikinu samt :) Þú ert það hinsvegar. Og ef einhver mynd minnir mig á þig og Nonna þá er það Ken Park hehe ógeðsleg mynd

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 09:56:31 / erlurnar

hahahahah

Klámmyndbandið með Evu Longoriu var því miður bara djók

Eins og Panama greindi frá í gær fóru miklar sögur af því að Eva Longoria hefði gert heimaklámmyndband sem nú væri komið í dreifingu. En Eva er greinilega meiri húmoristi en við gerðum okkur grein fyrir því allt var þetta í djóki hjá henni. Eva fékk nefnilega einhvern annan rosa fyndinn með sér í lið og gerði grínklámmyndband þar sem hún fer t.d. í koddaslag og hoppar á rúminu.

Í myndbandinu segir hún t.d. „Er þetta ekki alveg öruggt? Mig langar nefnilega að verða fræg og giftast körfuboltaleikara,“ og „Við verðum að drífa okkur, ég er að fara í einhverja prufu á morgun fyrir þátt sem heitir Desperate Housewives.“

Hvort myndbandinu var hent saman til að kæfa orðróminn eða hvort orðróminum var komið af stað í gríni er óvíst. Því miður er þó líklega ekki til neitt alvörumyndband.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan eða með því að smella hér.

 

hehehe góð:haha:

Ætlaði að setja inn myndir og svona, gera einhverja skemmtilega færslu en því  miður þá er þessi talva í vinnunni ekki að meika það og hún leyfir mér ekki einu sinni að ná í myndir þannig ég geri þetta bara heima framvegis pfff.....:klikk:

I´m so bored eitthvað og nenni ekki neinu núna, þoli ekki að það sé bara miðvikudagur heldur. Vil hafa föstudag :)

Spurning hvort að EINA kvittið sem við fengum í gær kaupi handa ykkur einn dag til að bæta þetta?  Kemur í ljós en þetta er allt í Unu höndum so you better step up people!

50 heimsóknir á dag og enginn segir orð, það gengur bara ekki, þá getum við alveg eins haft síðuna læsta og bara þeir sem biðja um lykilorð fá að sjá.

Jæja bæti kannski eitthvað við þetta heima og betrumbæti 8|




» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 10:13:38 / erlurnar

Síðasti sjéns

kommentið :!::!::!:  :evil:

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 21:21:16 / erlurnar

wassuupp

 

Bæbæ Bmw


 

Og Halló BenZ

 


 

Við ákváðum að svíkja lit og kaupa Benz í staðinn fyrir Bmw :^) En ég er ýkt ánægð með gripinn enda mikið tæknivæddur...

 

Annars er ekki mikið að frétta, erum bara að bíða eftir því að fara að byrja að byggja húsið okkar en það styttist í það og verðum vonandi flutt inn snemma á næsta ári :lol: cant wait.....og þá verður svaka innflutningspartý :haha:

 

Já það er kominn vetur....þokkalega kalt úti og leiðinda rigning. Væri frekar til í þetta en það :!:

 

Mikki Jacks er genginn út er sagt! Ekki væri ég til í hann....öghh

Langar einhvern í safarí??

 

hahah örugglega gaman hjá þessari :$

 

Jæja ekki meira af bulli í bili SeeYa :haha:

 

*EJ*


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 09:54:03 / erlurnar

sumarbústaður að hausti til :)

wassup ?

það eru alveg hátt í 50 heimsóknir á dag en aðeins örfáir commenta hvað er uppi með það ?

drullisti til að kommenta eða kvitta í gestabók eða við læsum síðunni:!:

 :evil:

 enn í dag þá ætlum við að fara í sumarbústað :D þið getið öfundað mig núna hahaha :klikk: djók ætlum að kíkja í húsafell ;) tjilla í pottinum fá okkur smá öl. hann Fróði minn kemur að sjálfsögðu með þessi elska :D hann vaknaði reyndar öfugu megin í morgun það var allt ómögulegt 8| en Ísa frænka kann sko á kauða  þannig þetta var alltí lagi hann hélt bara að það væri mánudagur ekkert skrítið að hann hafi verið grumpy ;) en um leið og ég upplýsti hann um það að það væri sko föstudagur og hann væri alveg að fara í helgarfrí og að við ætlum uppí bústað í kvöld þá kom smá brosglæða á litla fallega andlitið :P

sætastur :*

finnst ykkur ekki tíminn þvílíkt fljótur að líða ? vikurnar fljúga bara og ég er að fara út eftir 11daga shiiit um daginn voru það 3 mánuðir eða e-ð :o

hvað er að ?

Oscar De La Hoya er að tapa sér :o sjáiði punginn á honum hahhaha þessar myndir láku á netið og með honum á myndinni er þekkt nektardansmær, ég fékk þessar myndir á www.panama.is

en ég veit ekki hvað ég á að segja meir jú ég veit: það er ógeðslega erfitt að eiga börn hehe maður þarf að vera ýkt skipulagður og vakna mikið fyr, fara fyr að sofa 8| en þetta er í góðu svona annað slagið ágætis getnaðarvörn :P

that´s all folks!

Una


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 13:15:44 / erlurnar

14 dagar

ekki nema 2 vikur þangað til við förum til Turkey maður ! can´t fuckin wait :lol: bara tjill með bjór og að tana sig 8) borða geggjaðan mat og svona mmmmmmmmmm feel free to envy me now;) svo kem ég heim og 8 dögum seinna fer ég aftur í flugvél til usa hehe bara aðeins að monta  mig :haha:

en hvað á að gera um helgina sem nálgast ófluga?

ég ætla að fara í mömmu leik :D systir mín er að fara til amsterdam í fyrramálið og ég mun hugsa um litla drenginn hennar á meðan ;) ég er Ísa frænka :) hann Fróði minn er 4 ára og þarf mikið að segja manni og spyrja mann 8) algert kjútí pæ ég er meira að segja að hugleiða að fara í svolítið ferðalag um helgina en það er leyndó ;) kemur í ljós :lol:

vetur konungur er kominn til okkar einu sinni enn

 það bærist alltaf inní manni ákveðnar tilfinningar þegar hver árstíð gengur í garð hér á landi þó að maður bölvi stundum sumum í sand og ösku þá þykir manni samt vænt um þær allar, það eiga allir einhverjar góðar minningar sem tengjast árstíðunum okkar hér á íslandi hvort sem það er fyrsti snjórinn eða fyrsti alvöru sumardagurinn , þetta ásamt svo mörgu öðru hefur gert okkur að þeim sem við erum. ég myndi aldrei vilja búa þar sem aldrei kemur vetur og snjór . hvað er ykkar besta minning tengd snjó ? ? mín er sú þegar það var mjög snjóþungt einn veturinn ég held ég hafi verið svona einhversstaðar á bilinu 7-9 ára og allir krakkarnir í hverfinu bjuggu til snjóhús við enda götunnar á greniteignum þar sem ég bjó alla mína æsku. gröfurnar sem voru að ryðja veginn hjálpuðu okkur meira að segja komu með allan snjóinn til okkar þar til það var kominn svaka hóll þá var byrjað að grafa, flestir voru með svona bláar eða gular sandkassaskóflur einsog börn nota gjarnan en ekki mín neii nei mín fór inní skúr til pabba og náði í alvöru skóflu maður haha og dró hana á eftir mér upp alla götuna og ég var sko fyrst að búa mér til herbergi í hólnum :haha: ekkert smá stolt :!: ég fór líka að grenja þegar það byrjaði að rigna þetta var skemmtilegasta "leikhús" sem ég hafði fundið :frown:  en endilega segið mér hvaða minningu skýtur upp í huga ykkar þegar þið hugsið um vetur og snjó?? svona á maður að tækla þetta ekkert væl, ekkert "ohhh það er svo kalt og dimmt "  þunglyndi HAHA þetta eru ég og Erla á góðum degi í vinnunni :lol:

híhíhí soldið klikkaður húmor but we don´t care :klikk:

þar til næst

Una


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 17:08:04 / erlurnar

ahahahah

 

Bara varð að setja þetta inn, ógeðslega fyndið myndband :D

 

 

http://www.youtube.com/watch?v=MekqZKJDd20


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 09:33:51 / erlurnar

HAPPY FRIDAY! ;D

Góðan daginn gott fólk 8) þetta er nú bara ágætis dagur föstudagur og svona :) sólin er meira að segja að láta sjá sig einsog er en við vitum öll að hún skiptir um skoðun jafnoft og fluga flýgur á gler :S maybe this time! maybe this time! maybe this time! haha hafiði séð auglýsinguna úr býflugumyndinni ýkt fyndið :lol:

I´m going to the U.S. AND A ! jei no pimps no hos ;) fer 25-28 október :) með mágkonum mínum og tengdamömmu ;) það verður svaka fjör , við förum til baltimore og verðum svo bara á hóteli beint á móti mollinu :D ekkert smá næs það er bara rölt yfir e-ja brú til að fara með pokana uppá hótel svo skottast bara aftur í mollið 8) jeee get ekki beðið man en get heldur ekki beðið eftir tyrklandsferðinni :haha: ohh sól og hiti bjór og bara afslöppun ahh bara tjill sko með kallinum og svona get ekki hugsað það betra október is the month for me :P allavega á þessu ári hehe :lol:

þetta eru myndir af hótelinu í baltimore

frekar flott sko :o

og hér eru myndir frá turkey baby

ohhh þetta er svo æðislegur staður, það er ástæða fyrir því að ég er að fara í annað sinn á einu ári :P skuggalega fallegt þarna og bara ÆÐI PÆÐI :haha:

öhh jám stærsta fíkniefnamál íslandssögunar (og sumir voru ekki einu sinni búnir að frétta af því :o, nefnii engin nöfn hehe) það voru allir að segja puff hvernig dettur þessu liði í hug að þeir komist upp með þetta ! og ég segi bara einsog ég sagði við það , hvað haldiði að þessir gæar HAFI komist oft upp með þetta ? þetta er örugglega ekki fyrsta tilraun hjá þeim það get ég sagt ykkur og getiði ímyndað ykkur hvað kemst mikið af fíkniefnum inn fyrir landsteinana EASY ? það þarf að fara að gera e-ð í sambandi við þessar yfirgefnu hafnir úti á landi sem by the way var talið upp í sjónvarpinu svona ef e-r skildi vera að íhuga að gera þetta þá viti hann hvar sé best að gera það 8| kommon

 en hvað á að gera um helgina? ég þarf að mæta á þjónustudag á morgun hjá spkef þá fær maður frídag í staðin :) ekki veitir af :$

later

Unz

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 15:03:29 / erlurnar

Hvað er að verða um fólk?

læt fréttina tala :S

 

Reiddist rukkun fyrir endurskoðun

 

Loka varð bifreiðaskoðunarstöð Frumherja í Skeifunni á föstudag eftir að kona, sem reiddist mjög þegar hún var rukkuð vegna endurskoðunar á bifreið sinni, braut gler í afgreiðsluklefa og réðst að starfsmanni fyrirtækisins. Glerbrotum rigndi yfir afgreiðslumanninn sem sat inni í klefanum og varð að sauma fjögur spor í vör hans.

Samkvæmt upplýsingum frá Frumherja sætti konan sig illa við að þurfa að borga reikning vegna endurskoðunarinnar en hann hljóðaði upp á 1.200 krónur. Að sögn Orra Vignis Hlöðverssonar, framkvæmdastjóra Frumherja, mun starfsmaðurinn hafa boðið konunni afsláttarkjör en það dugði ekki til. Eftir það hafi hún lamið með hendinni í rúðuna á afgreiðsluklefanum þannig að rúðan mölbrotnaði með fyrrgreindum afleiðingum. Auk þessa hafi hún kastað lausum munum að öðrum starfsmanni sem vildi tryggja að hún færi hvergi, a.m.k. ekki fyrr en lögregla væri komin á staðinn.

 

Svona er þetta orðið í dag, stórhættulegt fólk á ferli sem hagar sér eins og fífl segi ekki meir.

 

EJ

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:43:49 / erlurnar

Morðkvendi

 Viðtal við Susan Atkins morðkvendi í Bandaríkjunum

60 MÍNÚTUR : Þetta er Susan Atkins, fyrrverandi fatafella sem gerðist morðingi fyrir Charles Manson. Í fyrstu átti hún að fara í gasklefann en síðar meir var dómnum breytt í lífstíðarfangelsi. Nú getur hún óskað eftir reynslulausn. Á hún skilið annað tækifæri ?

 

SUSAN ATKINS : Ég veit að þegar ég fer að sofa á hverju kvöldi þá get ég með engu móti gleymt neinu eða ýtt því frá mér. Ég var þarna og það er ekkert sem ég get gert í því.

60 MÍNÚTUR :
Susan Atkins var hluti af óhugnalegustu morðum í sögu Kaliforníu.

SUSAN ATKINS :
Ef ég hefði ekki verið hluti af þessu væru hugsanlega átta manns á lífi í dag. Átta mannslíf sem höfðu rétt á því að lifa og það er eitthvað sem ég hugsa um á hverjum degi (byrjar að gráta)

60 MÍNÚTUR : Eftir 17 ár í fangelsi hefur konunni sem venjulega er lýst sem hræðilegasta morðkvendi Bandaríkjanna, fundið Guð og gefið út aðra yfirlýsingu um morðin. Núna segist hún hafa verið vitni en ekki morðingi.

 

SUSAN ATKINS : Ég hef núna sagt sannleikann og hann er sá að ég drap engan. Ég laug að hæstarétti, ég laug við réttarhöldin og sagðist hafa drepið fólk sem í raun ég gerði ekki. Ég lifi við það að fólk haldi að ég hafi drepið ófríska konu.

60 MÍNÚTUR :
Þegar þið hlustið á þessa ótrúlega sögu, fáið þið tækifæri til að dæma hvort Susan hafi breyst eða ekki. Hún lítur öðruvísi út og hljómar öðruvísi heldur en hún gerði við réttarhöldin. Fjölskyldan lifði í eyðimörk nálægt Los Angeles undir dáleiðandi afli Charles Manson.

SPYRILL : Hvernig skipaði Charles ykkur að haga ykkur þegar þetta gerðist ?

 

SUSAN ATKINS : Án miskunnar, kaldranalega og hræðilega. Mér var skipað að sýna enga miskunn.

60 MÍNÚTUR :
Þekktasta fórnarlamb Manson fjölskyldunnar var hin fallega Sharon Tate leikkona sem var gift Roman Polanski. Charles valdi húsið þeirra og fimm manns létust þar.

SUSAN ATKINS :
Allir voru mjög hræddir. Þetta var hræðilegt ... getum við sleppt því að tala um þetta. Það er erfitt fyrir mig.

STEVEN KAY (saksóknari):
Susan Atkins var morðingi Sharon Tate og hún drakk líka blóð hennar. Hún sagði morðin hafa kveikt kynferðislega í sér.

SPYRILL :
Lögfræðingurinn sagði að þú hefðir drukkið blóðið úr Sharon Tate.

SUSAN ATKINS :
Ég gerði það ekki.

SPYRILL :
Lögfræðingurinn sagði að þú hefðir sagt "að það væri betra en kynlíf."

SUSAN ATKINS :
Ég sagði það aldrei.

STEVEN KAY : Sharon Tate bað til Guðs og bað um miskunn og sagði "það eina sem ég bið er um að eiga barnið mitt."

 

60 MÍNÚTUR : Sharon Tate og barnið hennar voru grafin í Holy Cross kirkjugarðinum. Það er enginn sorgmæddari en móðir hennar DORIS TATE sem heimsækir garðinn reglulega.

SPYRILL :
Hvernig minnistu Sharon ?

DORIS TATE :
Ég minnist hennar sem 26 ára gamalli stúlku. Konu sem var að eignast fjölskyldu.

60 MÍNÚTUR :
Doris finnst skrítið að kona sem var móðir sjálf hefði getað stungið ófríska konu.

DORIS TATE :
Hún bað um miskunn og Susan Atkins sagði "Þegiðu, þú munt deyja."

SPYRILL :
Samkvæmt réttarskýrslunum sagðir þú "Þegiðu tík, ég ætla að drepa þig."

SUSAN ATKINS :
(lítur niður og svarar engu)

60 MÍNÚTUR :
Nú biður Susan Atkins um reynslulausn en í hvert skipti sem fundur fer fram er Doris Tate til staðar og biður þess að henni verði aldrei sleppt úr fangelsi.

DORIS TATE :
Í fyrsta skipti sem ég sá hana, var ég svo reið að ég hefði getið brotið hvert bein í líkama hennar.

SUSAN ATKINS :
Ég veit ekki hvort frú Tate getur einhverntímann fyrirgefið mér, en ég vona að einhvern daginn geri hún það, ekki til þess að mér verði sleppt heldur svo að hún finni einhvern frið innra með sér.

DORIS TATE :
Tárin eru óekta. Mér finnst hún vera eins og litla Sarah Bernhard á sviði.

SPYRILL :
Leikkona ?

DORIS TATE :
Já án nokkurs vafa.

60 MÍNÚTUR :
Ef þið hlustið á Susan Atkins þá mun hún segja ykkur að þetta er ekki leikur. Eftir 17 ár í fangelsi, sjö af þeim í einangrun, segist hún hafa borgað skuldar sínir.

SUSAN ATKINS :
Ég þurfti að fyrirgefa sjálfri mér og það er eitthvað sem þú gerir ekki yfir nótt. Það er mikil og dagleg vinna og ég hef náð því markmiði. Það koma tímar þar sem ég ligg og græt vegna alls þess sársauka sem ég hef valdið öðru fólki.

DORIS TATE :
Svona segist henni líða en hún hefur ekki beðist fyrirgefningar á því sem hún gerði. Ég hef ekki heyrt þessa konu segja "ég er miður mín vegna þess sem ég gerði."

SPYRILL :
Geturðu komið út úr þér orðunum og beðist fyrirgefningar á því sem þú gerðir ?

SUSAN ATKINS :
Þú spyrð erfiðrar spurningar. Það eru ekki til nein orð yfir það hvernig mér líður "ég er miður mín, fyrirgefið mér." Þessi orð eru svo léttvæg og ofnotuð.

60 MÍNÚTUR :
Hvaða Susan Atkins trúið þið ? Englinum hans Charles sem gerði grín af morðunum eða þessarri eyðilögðu manneskju sem snéri sér að Guði ?

SUSAN ATKINS :
Ég veit að ef sonur minn hefði verið drepinn þá myndi ég ekki ganga um og hata á hverjum degi.

SPYRILL :
Það er kannski ekki hatur Susan, kannski á fólk erfitt með að skilja afhverju þú varst hluti af þessum morðum.

SUSAN ATKINS :
Ég skil ekki sjálfa mig og að ég hafi verið hluti af þessu fyrir 17 árum og ég skil að fólk skilji það ekki. Þau horfa á mig þar sem ég sit nú. Ég lít á sjálfa mig í speglinum og á erfitt með að trúa því að ég hafi verið hluti af þessu.

SPYRILL :
Fólk heldur að þú sért skrímsli.

SUSAN ATKINS :
Já en ég er það ekki. Ég er manneskja. Ég er manneskja sem fór í eiturlyf. Ég er manneskja sem hlustaði á brjálæðing og fylgdi honum. Ég eyðilagði líf margra en ég er samt manneskja. Ég finn til. Ef þú skerð mig, þá blæðir mér.

60 MÍNÚTUR :
Bandarískt þjóðfélag telur að nóg sé um brjálæðinga á götunum. Það var kynlíf, eiturlyf og ofbeldi sem kveikti í Susan Atkins eftir ömurlega barnæsku.

SPYRILL :
Líf þitt var ekki fallegt áður en þú kynntist Charles Manson.

SUSAN ATKINS :
Nei það var það ekki og ég fékk ekki eðilegt uppeldi. Foreldrar mínir voru alkahólistar. Ég var fórnarlamb misnotkunar. Móðir mín dó þegar ég var fjórtán ára. Mér gekk ekki vel í skóla og flúði þegar ég var átján ára.

60 MÍNÚTUR :
Þegar hún fór að heiman fór hún í eiturlyf og tók inn skammta sem myndu gera hvern sem er geðveikan.

SUSAN ATKINS :
Heilinn á mér var steiktur. Ég tók örugglega inn 350 LSD skammta á einu og hálfu ári. Ég reyki marijúana á hverjum degi, margar á dag.

SPYRILL :
Var Charles Manson guð í þínum augum ?

SUSAN ATKINS :
Hann greip athygli mína og lét fólki líða vel í byrjun. Það var góð tilfinning og ég vildi vera hluti af því.

SPYRILL :
Heldurðu að honum verði einhverntímann sleppt úr fangelsi ?

SUSAN ATKINS :
Það væru mistök ef það myndi gerast.

SPYRILL :
Margir eru hræddir um að ef þér yrði sleppt myndir þú drepa aftur.

SUSAN ATKINS :
Ég veit í hjarta mínu að ég gæti ekki drepið neinn. Ekki á morgun, ekki á næsta ári. Það er ekki ég.

60 MÍNÚTUR :
En hún drap fyrir 17 árum síðan. Núna segir hún að hún hafi logið við réttarhöldin vegna þess að Charles sagði henni að gera það.

SPYRILL :
Myrtirðu Sharon Tate ?

SUSAN ATKINS :
Nei.

SPYRILL :
Ég hélt að þú hefðir sagt mér áður að þú hefðir gert það og þessvegna liðir þér svo illa og bæðir um fyrirgefningu.

SUSAN ATKINS :
Ég var hluti af þessu, ég var þarna, ég tók þátt í þessu. Samkvæmt lögum er það sami hluturinn og að drepa einhvern. Hugsanlega hefði ég getað komið í veg fyrir þetta.

60 MÍNÚTUR :
Nú segir rað- og fjöldamorðinginn að hún hafi ekki drepið neinn. Charles Manson hafi gefið skipanirnar og Charles "Tex" Watson hafi drepið.

SPYRILL :
Hversvegna gastu ekki sagt frá því við réttarhöldin ?

SUSAN ATKINS :
Konurnar í Manson fjölskyldunni áttu að standa með mönnunum og vegna þess fann ég mig knúna til að verja þá og taka á mig sökina.

SPYRILL :
Við réttarhöldin hlóstu að yfirvöldum og fórnarlömbunum.

SUSAN ATKINS :
Ég fylgdi reglunum sem voru settar.

SPYRILL :
Reglum Charles Manson ?

SUSAN ATKINS :
Já.

SPYRILL :
Myndirðu vilja segja í eitt skipti fyrir öll fyrir hvað þú ert sek um ?

SUSAN ATKINS :
Mér var sagt að fara að Tate heimilinu og þar sá ég fólk myrt á hræðilegan hátt. Mér var sagt að drepa en ég gat það ekki. Ég gat það bara ekki.

60 MÍNÚTUR :
Saksóknarinn Steven Kay var hissa að heyra þessa útgáfu en viðhorf hans hefur ekki breyst.

DORIS TATE :
Mér finnst Susan Atkins vera einn hættulegasti kvenmorðingi sem ég hef hitt.

60 MÍNÚTUR : Breytingarnar í lífi SUSAN ATKINS hafa haft lítil áhrif á DORIS TATE.

 

DORIS TATE : Aðalatriðið er að þau drápu Sharon og barnið hennar. Sem móðir hennar ætla ég að gera allt sem í mínu valdi stendur til að sjá réttlætinu framfylgt.

SPYRILL :
Hvað finnst þér um nýju söguna sem Susan segir frá ?

DORIS TATE :
Kannski er það skiljanlegt að það sé erfitt fyrir hana að horfa á sjálfa sig í speglinum og sjá að hún drap ófríska konu. Hún er í afneitun. Ef einhverjum af þeim verður sleppt á götuna, hvar er þá réttlætið ?

60 MÍNÚTUR :
Jafnvel presturinn sem vill láta hana lausa, sér hana sem morðingja.

MICHAEL MANNING :
Það lítur út fyrir að hún hafi gert þetta en ég held að hún sé ringluð og virðist lifa í draumaheimi eftir alla þessa eiturlyfjaneyslu. Ég held að hún hafi drepið þau.

SUSAN ATKINS :
Ég gerði allt sem ég var beðin um, nema að drepa.

SPYRILL :
Hvernig ætlarðu að sannfæra fólk sem er að horfa á þig ?

SUSAN ATKINS : Ég veit ekki hvort það er mikilvægt að sannfæra einhvern. Það eina sem ég veit er að ég lifi í sannleikanum, hvern einasta dag. Hvort sem ég drap einhvern eða engan, þá var ég þarna meðan átta manns voru tekin af lífi og ég gerði ekkert til að stöðva það. Ég lifi með þessu.

 

 

Fegin ég að búa ekki í USA þar sem svo margir morðingjar eru:klikk:

Ef þið hafið áhuga á real raðmorðingjum til að lesa um þá mæli ég með þessari síðu   www.morðsaga.com

 

 

Újee komin helgi og tækifæri til að sofa út zzzz....kannski að maður skelli í einu köku og pönnsur eða eitthvað gott :D

 

Jæja góða helgi og megi guð geyma ykkur :)

 

ErlaPerla

 

 

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:39:27 / erlurnar

veik heima :(

shitty shitty dagur finnst ykkur ekki ? kannski bara hjá mér en mér er alveg sama ég ætla að dreifa pirringnum og neikvæðninni til ykkar HAHA :klikk: ég sendi hér með bakteríur til ykkar 8) en allavega er ég að missa vitið maður eg fann á mánudagskv.  koma svona pínu sviða í nebba og háls á bara einum klukkutíma og alveg damn it ég er að verða veik svo versnaði það og versnaði og á þriðjudagskvöld var ég orðin pirruð mínum betri helming til mikillar ánægju 8| vaknaði svo í gær morgun með næstum því 39 stiga hita jeii og alveg að kafna úr hori finnst ykkur þetta ekki skemmtileg saga? mér finnst hún hrikalega skemmtileg :cry: jæja svo núna í morgun vaknaði ég enn með hita og til að bæta gráu ofan á svart þá var ég búin að missa allt bragð og lyktarskyn :evil: sem er hræðilegt ég fór fram úr til að skera lauk á disk og leggja við hliðina á rúminu mínu sem virkar by the way eftir hálftíma gat ég andað EN ég fann ekki lyktina af lauknum ekki einu sinni þó ég hafi troðið honum uppí nefið á mér 8| 

en ég biðst forláts ef einhver vildi ekki vita þetta hehe who am I kidding, like I give a fuck :!:

en ég ætla að fara að eyða öðrum degi í að liggja fyrir framan tv-ið í svitabaði ekki að njóta neins bragðgóðs:cry:

 

My best friend :$

Una


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 10:01:42 / erlurnar

9/11

jæja þá er 9/11 runninn upp og liðin 6 ár frá þessum hræðilega atburði sem kostaði svo margan kanann lífið en ég ver viss um að margir bíði með öndina í hálsinum eftir að þessi dagur verði búinn því alltaf er hræðslan um að þetta gerist aftur á þessum degi en ég held að ef þetta gerist aftur þá verður það ekki þennan dag því allir eru á verði þennan dag, þessi al-qaida eða what ever eru svo mikill viðbjóður að það kæmi mér ekkert á óvart þó þeir myndu sprengja JFK flugvöll á aðfangadag :o

 

öss þetta er horror! manst þú hvar þú varst 9/11 ´01?

ég man það ég var nýbyrjuð í fjölbraut og heyrði einhvern skarkala frammi í keflavíkurhorninu og þar sátu allir límdir við tv-ið og maður alle hvað er í gangi og manni var sagt það en ég var ekki að trúa því engan vegin sko en svo er það soldið fyndið að ég var í blárri jogging peysu þennan dag með útsaumaðari mynd af New York framan á 8| ýkt skrítið

mér var líka ekki vel við það að systir mín bjó alls ekki langt frá new york, á þeirra mælikvarða, því það kom sprengja eftir sprengju :cry:en sem betur fer voru þau hvergi nálægt en hugsið ykkur allt þetta fólk sem dó og reyndi að skilja eftir síðustu skilaboðin til maka eða barna og sum náðust á upptökur þar sem maður gat bókstaflega heyrt fólkið deyja þetta er ógeðslegt :!:

en segið mér munið þið hvað þið voruð að gera þegar þið heyrðuð fréttirnar 9/11 ´01??

Una


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan